Skotavinafélagið
Klukkan
við mælum með
myndasíða
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
23.02.2009 19:44:27 / stefán1

Halló halló!

Nú er komið að hinni árlegu bústaðarferð SVF!!!

Ég veit ekki með ykkur en ég er að drepast úr spenningi. Planið er svona hjá okkur félugum í Búðardal. VIð leggjum af stað á fimmtudagskvöldið næsta til ykkar í bæinn og svo förum við allir saman austur fyrir fjall á föstudeginum. Lýst ykkur sunnanmönnum ekki vel á það?

Ég er sennilega búinn að redda bílstjóra á laugardeginum svo við getum brugðið okkur af bæ og gert eitthvað sniðugt. Komið með hugmyndir!

Stefán Dal

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 12:19:33 / kiddi1

Bara enn ein kveðjan...

Nei komiði sæl og blessuð öllsömul... Það er orðið ansi langt síðan að eitthvað kom fram á þessari síðu okkar, en ég verð að gjöra svo vel að kingja því að hafa ekki staðið við fyrri yfirlýsingu...! En allavega langaði bara að kasta inn smá kveðju, er í skólanum að drepast úr þynnku og að hlusta á einhvern kall sem að talar svo látt að ég er að sofna...þangað til næst...


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 20:33:59 / stefán1

Bústaða ferð

Nú er komið að hinni árlegu bústaðarferð hjá því sem eitt sinn var Skotavinafélagið. Kannski maður taki samt pilsið með bara svona upp á djókið:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 02:35:46 / kiddi1

Tveir með öllu....!

Blessuð og Sæl öll sömul. nú ætlum við Elvar að halda út bloggi frá þessari síðu, og segja ykkur frá bæjar, og allsherjar djammi. komið og lesið alvöru sögur, af alvöru drengjum.

Kveðja Kiddi...;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 14:05:18 / baldur1

...

góðann daginn allir, ég hef ákveðið að draga mig útúr skotavinafélaginu. Baldur

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 19:57:37 / stefán1

Hæhó

Fishing Festival?? Landsmót Hestamanna? Verzlunarmannahelgin?

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 13:22:32 / baldur1

hmmmmm

Hvaða mynd er FÖLSUР        ?????


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 16:23:43 / baldur1

Rafting mega ferð.

Jæja Strumpar.

Ég er að fara af stað með að skipuleggja ferð í rafting í sumar þannig að þar sem allar helgar eru stífar af hinum ýmsu viðburðum yfir sumartímann ætla ég að vera snemma í þessu. Stefnan er tekinn á einhvern laugardag seinnipartinn í júlí eða í byrjun ágúst. Farið verður í Austari jökulsá sem er uppfull af hrikalegum flúðum og þess vegna alls ekki fyrir vatnshrædda að koma með. Ég hef einu sinni áður farið hana og sem betur fer var fór allt fram í vatnsföllum því þá gátu menn hiklaust migið á sig úr hræðslu í stærstu flúðunum. í þeirri ferð duttu tvær stelpur útúr bátunum, önnur náði kajakgaurinn fljótlega að pikka upp en hin flaut niður ánna og fannst hangandi á steini klukkutíma seinna, alveg búinn á því. ég sat aftast í mínum bát og endaði fremstur í eitt skiptið eftir að báturinn endastakkst ofan í hringiðupitt...þvílíkt fjör.

eftir ferðina er svo hægt að slaka á í heitumpott og drekka öl sem er selt á staðnum:haha:

þannig að komið með helgi sem er ekki einhver fastur stórviðburður og neglum hana niður. Það geta komið með um 30 jaxlar, þannig að bara þeir sem vilja koma með í alvöru FERÐ bara láta vita hér eða á balli323f@hotmail.com  koma svo daladúddar, allir með.

verðið er 8300 kall á kjaft

http://www.rafting.is/icelandic/is-east.php

http://www.rafting.is/pictures_east01.php


» 23 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 10:40:37 / kiddi1

1árs...!!!

Jæja gott fólk, nú er komið sumar og því engin ástæða til annars en að setja í fimmta gír, og taka öllu með pompi og pragt...nú liggja málin þannig að við erum að fara að panta restina af buningnum eftir próf, og allann buninginn á Birki...;) En núna 14. maí er ársafmæli hjá okkur, Skotavinafélaginu, og ætla ég að segja örlítið frá þeirri stund sem þetta góða félag okkar kom til.

Jú það var ein kvöldstund heima hjá mér, að Sunnubraut en þar leigði ég vorið 2005, þar bauð ég nokkrum vel völdum einstaklingum til að fá sér í glas með mér þar sem að þetta var síðasta kvöldið mitt í húsinu. Þarna komu saman Baldur, Stefán, Birkir, Elvar, Óskar og mig minnir að Sunna hafi verið líka, en þarna var drukkið, drepist og jafnvel ælt þetta góða kvöld. En það sem kveikti áhugann á þessu hjá okkur var í rauninni Stefán okkar Dal, það má segja að hann hafi veitt innblásturinn af þessu, en já hann kom í Skotapilsi sem að mamma hans (Gróa) hafði gert úr gömlum náttfatabuxum sem hann átti...sniðugt...;) En þá ákváðum við að stofna Skotavinafélagið, eða SVF. Félag einfaldlega til að styrkja vinaböndin okkar á milli, og vera þeim mun oftar í sambandi, allt gekk þetta ljómandi vel, og sýndi nánast strax árangur. Svo var það í nóvember, eða desember sem við fengum pilsin, og vakti það mikla lukku...;)
Nú erum við sjö, en Víðir okkar Jónasar hefur bæst við í hópinn, og er þatta allt frekar gaman bara.

En nú er maður aðeins búinn að fræða ykkur um þetta félag okkar, en planið verður örugglega gott, fyrst að afmæli okkar nálgast, þannig að stay tuned, og hafið augun opin...;)

Kv Kiddi Skotalimur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 12:56:02 / baldur1

Maður mánaðarins


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 21:21:21 / kiddi1

Fundur...?!?!?

Hallóhalló...hér eru held ég allir á lífi ennþá.

Það er nú ekki mikið að segja frá núna, nema bara the same old shit....djamm...! Það hefur ekki vantað fjörið hjá okkur flestum held ég frekar en fyrri daginn, en ekkert frekar í þá sálma...!

 

Jæja drengir...nú er sumarið á næsta leiti, og þarf að fara að huga að fatakaupum o.fl. Legg ég til að við reynum að setjast niður hjá einhverjum af okkur og ræða málinn, með mjöðinn við hendina. Einhver helgi eftir páska hljómar held ég helvíti vel.

 

Endilega látið ljós ykkar skína á þessari umræðu...

 

En nóg í bili.....

 

Kv. Kiddi Skotarass...;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 01:48:58 / stefán1

Skota VAN!!!

Jæja strákar! Gaman að heyra að þið skemmtið ykkur vel þarna í bænum!

Við Óskar skelltum okkur í menningarreisu vestur á Reykhóla að hitta spekinga og spá í krabbagildrur, sem var auðvitað voða gaman!:)

En stórfréttin er sú að ég er búinn að finna fyrir okkur almennilega Van, sem ég er tilbúinn að kaupa, ef þið hjálpið mér að gera hann góðan fyrir sumarið;) greyið þarfnast smá viðgerðar.... http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=19&BILAR_ID=114589&FRAMLEIDANDI=GMC&GERD=VAN&ARGERD_FRA=1985&ARGERD_TIL=1987&VERD_FRA=-150&VERD_TIL=450&EXCLUDE_BILAR_ID=114589

þetta er gripurinn! hvernig lýst ykkur á?

Stefán Dal


» 22 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 16:56:08 / baldur1

Laugardagskvöld

GRAND ROKK Í KVÖLD......

kl 22:00

Andrúm

Streng

Nilfisk

Black Valentine

Future Future


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:52:33 / kiddi1

Jú veistu...kannski að það sé kominn tími á nýja færslu....

Jæja...það er nú ekki mikið til að segja frá, en maður reynir að henda einhverju inn...

Í gær skruppum við Elli, Víðir og Ingibjörg á Grandrokk á tussutónleika, það var fínt, ég var edrú...já mikið rétt svo alsgáður að ég hefði getað greint hundi frá ketti....8|en þar hittum við Balla og Reyni, og spjölluðum við þá frameftir eitthvað...

Svo er stefnan bara tekin á Grandrokk aftur í kvöld, fleiri tónleikar og enginn EDRÚ....:D

En nóg í bili...

Kv. Kiddi


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 21:06:32 / kiddi1

Bústaðarferð...seinni hluti...;)

Jæja...loksins hefur maður sig í það að skrifa meir...;)

 

En já, þegar við drengir vorum búnir að koma okkur þægilega fyrir, skelltum við okkur í sundfatnaðinn, og sprikluðum þarna berir að ofan á sundbuxum, eins og algjörir fávitar, en það var bara gaman...þó svo að ef ég hefði séð til okkar úr einum af bústöðunum í kring, þá hefði ég trúlega hugsað HOMMAR...;)

 

Baldur var fyrstur manna að skvera sér í pottinn þegar hann hafði náð 36-37°C, svo fylgdum við fast á hæla hans, og sumir BÓKSTAFLEGA hentu sér í pottinn(ELLI)...!!! eftir smástopp í pottinum ákváðu einhverjir að fara og snyrta sig...sem olli “HAIRY” vaski, gólfi og eiginlega bara öllu klósettinu...en það var bara hlegið að því...ég man nú ekki alveg hvernig allt var...en mig minnir að Baldur og Stefán hafi sofnað fyrst, og fast á hæla þeirra fylgdi Elli...! En ég, Birkir og Víðir sátum við eldhúsborðið eftir að Víðir hafði grillað sér, og ræddum grafalvarleg mál, SVEITARSTJÓRNMÁL...!!! Ég mæli eindregið með að fólk sem vill hafa gaman af svona ferðum, ræði EKKI svona mál...það endaði með því að það sauð uppúr og ég fór að sofa, þannig að ég veit ekkert hvað þeim fór á milli eftir það, en eitt veit ég að þegar vaknað var á Laugardag, var allt TANDURHREINT...! þetta var mikil spégulering, en þegar allir voru farnir á fætur nema einn, og enginn vissi neitt, þá hlaut það að koma niður á Víði að fá heiðurinn af þrifnaði hússins...En þegar málin voru rædd var ástæða fyrir þessu öllu saman...jááá, því að hann vinur minn hann Víðir hafði tekið sig til og ælt í VASKINN...!!! þess vegna sá hann sér ekki fært um annað en að vaska allt upp, en þar sem að hann var byrjaður að þrífa, þá kláraði hann það...Duglegur strákur hann Víðir...;)

Eftir smá þynnku, var ákveðið að halda í Borgarnes í sund og að fá sér að éta, fyrsta stopp var hins vegar í Húsasmiðjunni, en það var nú bara til að kyssa þar unga stúlku á kinnina, sem ber nafnið Kristín Heba...en auðvitað varð maður að gera sig að frekara fífli með látum og söng, en það gerði engum illt nema kannski hausnum á Baldri, en hann var svo þunnur að hann meikaði varla að vera í kringum okkur...haha...=)

Etir stutt stopp í hyrnunni, og smá kjaftatörn við fyrrverandi ferðamálafulltrúa Dalasýslu, hana Ölmu, þá héldum við í sund...og get ég sagt það að það er næstum grátlegt að cameran var ekki tekin með...en einhverjir eru sjálfsagt bara ánægðir með það...! En þar  kom óþarflega mikið bert hold í ljós fyrir framan menn, konur og börn...hahahahaha...það var BARA snilld...!!!;)

eftir sundið fórum við uppá “Skógarbökuna”=Shell...og fengum okkur pítsu, en þar fékk Víðir mikilmennskubrjálæði...Elli alltof mikinn ost...en nóg um það, eftir gott át lá leið okkar í Bónus...jáhá, þar voru eknir niður heilu rekkarnir af manni sem er treyst fyrir að keyra gamalmenni til og frá tannlækni...Brjálæði...!!! og einnig voru keypt ófá sokkapörin, og síðast en ekki síst blómateyjur...ekki einu sinni spyrja...?!?!?!

En eftir þessi stórkaup var loksins haldið uppí bústað, þar sem að ég gat loksins fengið mér BJÓR...jibbý...!;)

Þegar leið á kvöldið og Víðir búinn að taka fegurðarblundinn, var farið að huga að grillinu, eftir að steikurnar voru eldaðar, áttum við drengir Hlaðborð af sælkeramat...en Baldur greyið missti af þessari veislu því að hann hafði skotist á Akranes eftir konunni, en hann kom litlu seinna...og áttu þau skötuhjúin ágæta stund við eldhúsborðið með cameruna hans Ella, og Ella sjálfan oní þeim en þau höfðu bara gaman af því...;)

Seinna um kvöldið mættu svo allir...þegar mest var í bústaðnum voru um 20 manns, en ég taldi ekkert hvað voru margir í pottinum þegar mest var...! Þarna var drukkið, talað útlensku,  beðið um sérbakað og miklu fleira...!

Elli drapst einhvern tíma snemma, en kom sterkur inn um 4 leytið aftur, og þá hélt gleðin áfram, Óskar tók sama flipp og Víðir kvöldið áður, en hann fór að raka sig...Hvað er málið með að raka sig...???, en ekki nóg með það, en Víðir hafði ælt fyrr um nóttina í vaskinn...aftur...og núna í klósettvaskinn...hvað er málið með að æla í vaskinn...hvað þá þegar klósettið er einu skrefi til hliðar...??? en eftir allar þessar tilraunir með vaskinn var hann orðinn frekar ógeðslegur...!!! en það er bara fyndið...!

Þegar allir voru farnir nema ég og Elli fórum við að horfa á Stundina okkar, enda klukkan orðin 10 á sunnudagsmorgun, báðir að drekka Captain dry, þar sem að allt bland var búið...!=)

Þegar við höfðum sofið í tæpa 2-3tíma var sprottið á fætur og skundað niður í Baulu að fá sér að éta, og svo aftur uppí bústað að taka til...! Húsið var viðbjóður, en okkur tókst nú samt að gera það eins og nýtt á þremur tímum en þar sem að allir höfðu farið um nóttina, þá vorum við aðeins 4 að taka til, nánar tiltekið ég, Birkir, Elli og Stefán.

Þegar við skiluðum húsinu, höfðu aðeins 2 glös brotnað yfir alla helgina, og ein skápshurð farð af lömum...ekki mikið!!!;)

 

En hér hafið þið alla sólarsöguna...

 

Kv. Kiddi Skotarass...;)


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6